Hótelgisting í Reykjavík
Blue Mountain Apartments ( BMA íbúðahótel), Urðarhvarfi í Kópavogi
Félagið er með samning við íbúðahótelið Blue Mountain Apartments í Kópavogi þar sem boðið upp á gistingu í fallegum, rúmgóðum og vel útbúnum stúdíóíbúðum.
Rúmföt og handklæði fylgja og eru rúmin uppábúin við komuna. Baðherbergi eru öll með sturtu, frí nettenging er innifalin, sem og aðgangur að öllum sjónvarpsrásum, auk þess sem þvottaaðstaða er til staðar á hótelinu með þvottavélum og þurrkurum. Lyfta er í húsinu, aðgengið er gott og frí bílastæði eru fyrir framan húsið.
Mæting er eftir kl.14:00 á komudegi og skila þarf herbergi fyrir kl. 11: 00 á brottfarardegi.
Félagsmenn sjá sjálfir um að panta gistinguna á hótelinu með því að senda tölvupóst á netfangið bma@bma.is.
Gefa þarf upp nafn og kennitölu og taka fram að um félagsmann sé að ræða.
Verð fyrir félagsmenn:
14.900 krónur nóttin fyrir einn eða tvo,
15.900 kr. fyrir þrjá
16.900 fyrir fjóra.
Greiða þarf gistinguna fyrirfram en ekki eftir dvöl. Félagið niðurgreiðir svo kostnaðinn enn frekar við framvísun reiknings á nafni félagsmannsins.
Að sjálfsögðu væntum við þess að félagsmenn okkar gangi vel um og skili herbergi snyrtilegu!
Önnur hótelgisting:
Þá er hægt að framvísa reikningi fyrir hótelgistingu hvar sem er á landinu, og fá 3.500 kr. endurgreiddar fyrir hverja nótt.
Hámark endurgreiðslu á ári vegna hótelgistingar (þar með talið endurgreiðsla vegna gistingar á Blue Mountain Apartments) er 65.000 krónur á ári.
Til baka
|