07. janúar 2021
Minnum félagsmenn á að nú eru að hefjast áhugaverð námskeið hjá Farskólanum sem eru félagsmönnum að kostnaðarlausu.
Við hvetjum félagsmenn til að nýta tækifærið og skrá sig á ókeypis námskeið.
Skráning fer fram í gegnum heimasíðu Farskólans (líka hægt að smella á nafn námskeiðs hér fyrir neðan),
eða með því að hringja í Farskólann í síma 455 6010
Smelltu á nöfn námskeiðanna hér fyrir neðan til að lesa nánar um hvert námskeið fyrir sig og/eða skrá þig á námskeiðið.
Eftirtalin námskeið eru í boði:
Að varða veginn fyrir þitt besta ár (2 skipti) - 12. og 19.janúar
360 gráðu heilsa (4 skipti) - 14., 21., 28.jan og 3.febrúar
Skipulagið heima fyrir, herbergi fyrir herbergi (2 skipti) - 26.janúar og 2.febrúar
Pottaplöntubarinn - 4.febrúar
Sálræn áföll - 18.febrúar
Breyttu áskorunum í tækifæri ( 2 skipti) - 9. og 16.febrúar
Jákvæð samskipti - 23.febrúar
Heilaheilsa og þjálfun hugans (2 skipti) - 10. og 17. mars
Heimili og hönnun - 25.mars
Takk fyrir, í orðsins fyllstu - 20.apríl
Grænn lífstíll - 28.apríl
Fjölæringa í blómabeðin - 4. maí